Vandræðagangur og úrræðaleysi ríkir í skólakerfinu þegar kemur að bráðgerum börnum.
Meyvant Þórólfsson, dósent við menntavísindasvið Háskóla Íslands, segir fátt í boði fyrir þessa nemendur.
„Það er eflaust ekki meiningin en mig grunar að skólakerfið viti ekki alveg hvernig á að aðstoða bráðgeru börnin.“ segir Meyvant í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.