Árni Sverrisson, forstjóri hjúkrunarheimilisins Sólvangs, lætur af störfum 31. mars næstkomandi að eigin ósk.
Árni hóf störf á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði árið 1980 og var forstjóri sjúkrahússins frá 1985. Árni tók einnig við stöðu forstjóra hjúkrunarheimilisins Sólvangs árið 2006 þegar þessar tvær stofnanir voru sameinaðar, að því er segir í frétt á vef velferðarráðuneytisins.
Heilbrigðisráðherra þakkar Árna vel unnin störf á löngum ferli og óskar honum alls góðs á komandi árum.
Kristján Sigurðsson hefur verið skipaður tímabundið til að gegna stöðu forstjóra Sólvangs.