Tók nýju rennibrautina í gagnið

Borgarstjórinn á flugi út úr rennibrautinni ásamt syni sínum.
Borgarstjórinn á flugi út úr rennibrautinni ásamt syni sínum. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, tók formlega í notkun nýja rennibraut í Árbæjarlauginni í dag klukkan 13. Þaut Dagur niður brautina ásamt syni sínum eins og ljósmyndari mbl.is náði svo skemmtilegri mynd af. 

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að nýja brautin sé endurnýjun eldri brautar og er hún byggð ofan á burðarvirkið sem fyrir var með minniháttar breytingum. Yfirborð brautarinnar er mun betra en yfirborð eldri brautarinnar. Er hún yfirbyggð með gagnsæju efni sem á að styrkja upplifun notenda af hraðanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert