Einn heppinn lottóspilari var með allar tölurnar réttar í potti kvöldsins og hlýtur rúmlega 32,8 milljónir króna í vinning. Hann keypti lottómiðann í N1 við Ártúnshöfða í Reykjavík.
Þá gekk bónusvinningurinn einnig út, en sá miði var í áskrift.
Átta manns voru með fjórar réttar tölur í Jókernum og hlýtur hver um sig hundrað þúsund krónur í vinning.