Harður árekstur við Miklubraut

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Júlíus

Harður árekstur varð á gatnamótum Lönguhlíðar og Miklubrautar rétt fyrir miðnætti í gær. Ekki er vitað um slys á fólki. Töluvert eignatjón varð, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni, og voru tvær bifreiðar fjarlægðar af slysstað með kranabíl.

Á sjötta tímanum í morgun var lögreglan kölluð til að gistiheimili í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem maður hafði látið ófriðlega. Hann hafði neitað að segja til nafns, ekki gefið upp rétt herbergisnúmer og var jafnframt búinn að henda til tölvum og öðru í anddyri gistiheimilisins. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Þá var enn fremur tilkynnt um tvær líkamsárásir í Vesturbænum í nótt og eru málin til rannsóknar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert