Vill endurskoða reglur um lífeyrisgreiðslur

Kristján Þór Júlí­us­son heilbrigðisráðherra.
Kristján Þór Júlí­us­son heilbrigðisráðherra. mbl.is/Júlíus

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir að endurskoða þurfi reglur um lífeyrisgreiðslur til þeirra sem komi inn í hjúkrunarrými þannig að á þær verði litið sem réttindi einstaklinga, en ekki sem fjárveitingar til stofnana.

Þetta kemur fram í frétt á vef Austurfréttar.

„Fyrirkomulagið í dag er þannig að um leið og einstaklingur er skráður inn á hjúkrunarrými hirðir Tryggingastofnun og hjúkrunarheimilið lífeyri viðkomandi einstaklings og hann fær einhverja tugi þúsunda í dagpeninga. Þessu vil ég breyta og tel að við eigum að breyta,“ sagði Kristján Þór við vígslu nýs hjúkrunarheimilis á Egilsstöðum um síðustu helgi.

Hann sagði það réttlætismál að greiðslur úr almannasjóðum í gegnum fjárlög teldust sem réttindi einstaklinga sem löggjafarsamkundan væri að ákvarða þeim, í stað þess að þetta væru fjárveitingar til stofnana.

„Það er sömuleiðis réttlætismál að einstaklingar hafi fullt forræði yfir lífeyri sínum til hinstu stundar,“ sagði Kristján Þór.

Hann nefndi einnig að þörf væri á 500 nýjum hjúkrunarrýmum fram til ársins 2020 en þau eru alls ríflega 2600 í dag. Stofnkostnaður þessara rýma er talinn 1,5 milljarður króna og árlegur rekstrarkostnaður þriðjungurinn af því.

„Verkefnið er ærið og við greiðum ekki úr allri þessari þörf með steinsteypu. Við munum færa okkur hægt og bítandi í að draga úr þeirri áherslu sem hefur verið á stofnanavist og þreifa okkur inn í þann veruleika að þjónusta fólk betur og lengur í heimahúsi en gert hefur verið,“ sagði heilbrigðisráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert