Fluttur á slysadeild eftir fall

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Maður var fluttur á slysadeild um kl. 14 í dag eftir að hann hrapaði nokkra metra og slasaðist. Um vinnuslys var að ræða, samkvæmt dagbók lögreglu. Þá var tilkynnt um annað vinnuslys í Vesturbænum fyrir hádegi, er varð þegar maður var við vinnu með vélsög.

Tilkynnt var um fimm þjófnaði úr verslunum á höfuðborgarsvæðinu í dag og eitt innbrot í bifreið í austurhluta borgarinnar. Þá var bifreið stöðvuð á Miklubraut um kl. 14 en ökumaðurinn var grunaður um vímuefnaakstur.

Um klukkustund síðar var annar ökumaður stöðvaður á Barónsstíg, einnig vegna gruns um vímuefnaakstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert