Halldóra forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins

Halldóra Vífilsdóttir.
Halldóra Vífilsdóttir.

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Halldóru Vífilsdóttur í embætti forstjóra Framkvæmdasýslu ríkisins til fimm ára frá 1. apríl 2015.

Halldóra lauk B.Arch frá University of North Carolina, M. Arch frá Tækniháskólanum í Helsinki og námskeiðum á meistarastigi í skipulagsfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands. Hún starfaði sem arkitekt og verktaki hjá Arkitektastofu Hilmars og Finns, sem Hönnunarstjóri Mosagötu hjá Arkís, sem framkvæmdastjóri Holt og bolt og var eigandi Hvar arkitektar. Hún hefur auk þess starfað sem stundakennari við Háskóla Íslands í nokkur ár. Árið 2010 hóf hún störf hjá FSR, fyrst sem verkefnastjóri en sem aðstoðarforstjóri frá árinu 2012.

Embættið var auglýst í febrúar síðastliðnum og bárust 17 umsóknir, segir í frétt ráðuneytisins.

Hlutverk Framkvæmdasýslu ríkisins er að vera leiðandi á sviði opinberra framkvæmda með það að markmiði að bæta verklag og auka skilvirkni, hagkvæmni og gæði við framkvæmdir ríkisins. Hjá stofnuninni starfa 23 starfsmenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert