Kostnaðarsamur hraðaakstur

mbl.is/Sigurður Bogi

Átta ökumenn hafa að undanförnu verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Sá sem hraðast ók mældist á 141 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Hans bíður 130.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. Þá óku nokkrir án öryggisbeltis, virtu ekki stöðvunarskyldu eða brutu umferðarlög með öðrum hætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert