Ók aftan á steypubíl

Einn var fluttur á slysadeild en hann er ekki mikið …
Einn var fluttur á slysadeild en hann er ekki mikið slasaður. mbl.is/Ómar

Fólksbíl var ekið aftan á steypubíl á Seltjarnarnesi á ellefta tímanum í morgun. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild en er hann ekki mikið slasaður, samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Fólksbíllinn er mikið skemmdur eftir áreksturinn. Tilkynnt var um óhappið kl. 10.20 í morgun og var lögregla og sjúkralið sent á vettvang.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert