Þungfært á sveitavegum

Þorkell Þorkelsson

Hálkublettir eru á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Nokkur hálka er á köflum á Suðurlandi, einkum útvegum og sumstaðar er jafnvel þæfingur eða þungfært á sveitavegum.

Á Vesturlandi er víða hálka eða snjóþekja en Fróðárheiði er ófær en unnið að hreinsun.

Hálka, snjóþekja og jafnvel þæfingur er á Vestfjörðum og þungfært á kafla í Barðastrandarsýslu. Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum en unnið að hreinsun.

Það er víðast hvar hálka eða snjóþekja  á Norðurlandi, éljagangur nokkuð víða og skafrenningur á nokkrum leiðum. Þæfingsfærð er á Víkurskarði en unnið að hreinsun.

Á Austurlandi er greiðfært á Héraði en sjóþekja á Fjarðarheiði og Oddsskarði en hálka og skafrenningur á Fagradal. Snjóþekja er með suðausturströndinni og þæfingsfærð í Öræfasveit en unnið að hreinsun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert