Á loks fyrir skuldunum

Vinningshafi sem er 32,8 milljónum krónum ríkari eftir að dregið var út í lottóinu sl. laugardag kom á skrifstofu Íslenskrar getspár til að vitja vinningsins. Hann sagði þetta þvílíkt happ og í raun ótrúlegt.

Fram kemur í tilkynningu frá Íslenskri getspá, að maðurinn hefði sagt að erindið sem hann átti í N1 í Ártúnsholti hefði verið ekki að kaupa Lottómiða, heldur að fá sér snæðing.

„Hann hafi þó í röðinni áttað sig á að það væri laugardagur og síðustu forvöð að taka þátt í leiknum, aðeins nokkrar mínútur í lokun. Undanfarin ár hefur hann unnið baki brotnu fyrir skuldum sem komnar eru í margra ára vanskil og hann sér því, allt í einu, lausn sinna mála. Aðspurður hvort hann tæki oft þátt, játaði hann og sagðist hafa unnið lága upphæð fyrir fjóra rétta, en sannfærður um að stærri vinningur væri „alveg að koma“.

Vinningshafinn lýsti vel hjartslættinum sem hann telur að allir fái, líka þeir sem fái lægri vinningsupphæðir. Þetta hafi verið ólýsanleg tilfinning,“ eins og segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert