Þungar áhyggjur af fjölgun vinnuslysa

Framsýn, stéttarfélag lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fjölgunar vinnuslysa í …
Framsýn, stéttarfélag lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fjölgunar vinnuslysa í fiskvinnslu á Íslandi. Ernir Eyjólfsson

Framsýn, stéttarfélag lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fjölgunar vinnuslysa í fiskvinnslu á Íslandi. Samkvæmt úttekt Vinnueftirlitsins er ástandið ekki viðunandi og hefur stofnunin krafist úrbóta þegar í stað hjá nokkrum fiskvinnslufyrirtækjum.

Þetta kemur fram í ályktun sem Framsýn hefur sent frá sér.  

Í úttekt Vinnueftirlitsins kemur m.a. fram: „Það er algerlega óviðunandi í upphafi 21. aldarinnar að slysum í fiskvinnslu fjölgi. Fiskvinnslan þarf að taka sig á, öryggismál í fiskvinnslu verða ekki í lagi nema að fiskvinnslan vilji það sjálf.“

„Framsýn stéttarfélag  tekur heilshugar undir með Vinnueftirlitinu um mikilvægi þess að öryggismál í fiskvinnslu séu í fullkomnu lagi.  Í því sambandi gegnir Vinnueftirlitið mikilvægu eftirlitshlutverki.  Þá er ábyrgð hönnuða vinnslulína og fyrirtækja í fiskvinnslu mikil,  þar sem þeim ber skylda til að tryggja öryggi starfsmanna.

Samantekt Vinnueftirlitsins er mikill áfellisdómur yfir atvinnugreininni og kallar á frekari umræðu. Fyrir liggur að aukin tæknivæðing hefur aukið afköst í  fiskvinnslu það mikið að talað er um tæknibyltingu, jafnframt sem aukin framleiðni hefur bætt afkomu fyrirtækjanna. Á sama tíma hefur ekki verið hugað að velferð starfsmanna sbr. samantekt Vinnueftirlitsins um fjölgun slysa í greininni. Þá liggur fyrir að með aukinni tækni hafa stoðkerfisvandamál hjá fiskvinnslufólki aukist,  sem er ólíðandi með öllu.

Framsýn, stéttarfélag kallar eftir umræðu  um vinnuverndarmál í fiskvinnslu með það að markmiði að fækka slysum og horft verði til þess hvernig hægt er að tryggja öryggi og velferð starfsmanna með viðunandi hætti,“ segir í ályktuninni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert