Átta vilja í Keflavíkurkirkju

Átta umsækjendur eru um embætti sóknarprests og prests í Keflavíkurprestakalli, …
Átta umsækjendur eru um embætti sóknarprests og prests í Keflavíkurprestakalli, Kjalarnessprófastsdæmi. mbl.is/Arnór

Átta umsækjendur eru um embætti sóknarprests og prests í Keflavíkurprestakalli, Kjalarnessprófastsdæmi. Þar af er einn umsækjandi er um embætti sóknarprests og átta umsækjendur um embætti prests.

Umsækjandi um embætti sóknarprests er:

Sr. Erla Guðmundsdóttir

Umsækjendur um embætti prests eru:

Cand. theol. Arnaldur Máni Finnsson
Mag. theol. Dís Gylfadóttir
Séra Erla Guðmundsdóttir
Mag. theol. Fritz Már Berndsen Jörgensson
Mag. theol. Hildur Björk Hörpudóttir
Mag. theol. María Rut Baldursdóttir
Cand. theol. María Gunnarsdóttir
Mag. theol. Viðar Stefánsson

Frestur til að sækja um embættin rann út 27. mars síðastliðinn. Almenn prestskosning fer fram um embætti sóknarprests í prestakallinu.

Biskup Íslands skipar í embætti prests að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu auk prófasts.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert