Einn vann 88,4 milljónir

Einn var með alla rétta í Víkingalottóinu og hlaut hann 88,4 milljónir í vinning. Vinningsmiðinn var keyptur í Danmörku. Fjórir hrepptu 100.000 krónur í Jókernum.

Vinningsmiðarnir voru keyptir í Söluturninum Langholtsvegi 70, N1 Skógarseli, Samkaupum-úrvali á Selfossi og Grillhúsinu við Brúartorg í Borgarnesi.

Vinningstölurnar í Víkingalottóinu voru 2-11-20-21-24-34 og bónustölurnar 12-26.

Jókertölurnar voru 7-0-5-4-1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert