Guðný stýrir nýrri samskiptadeild Landspítalans

Guðný Helga Herbertsdóttir.
Guðný Helga Herbertsdóttir. mbl.is/Arnaldur

Guðný Helga Herbertsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri nýrrar samskiptadeildar Landspítala. Deildin mun innleiða nýja stefnu um samskipta- og kynningarmál sem og vinna að miðlun upplýsinga um starfsemi spítalans. 

Þetta kemur fram á vef Landspítalans.

Guðný Helga hefur frá árinu 2011 starfað sem upplýsingafulltrúi Íslandsbanka og leitt stefnumótun bankans í samfélagsábyrgð. Þar áður starfaði hún sem blaðamaður hjá 365 miðlum. Hún er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í lögum og viðskiptum Evrópusambandsins frá Viðskiptaháskólanum í Árósum.
Gert er ráð fyrir að Guðný Helga hefji störf um miðjan maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert