Marga vantar vín fyrir páska

Mikið er að gera í verslunum ÁTVR í dag.
Mikið er að gera í verslunum ÁTVR í dag. Sigurgeir Sigurðsson

Mikið er að gera í verslunum ÁTVR í dag og hefur álagið aukist eftir því sem líður á daginn. Margir nýta daginn í dag til að versla áfengi fyrir næstu daga en lokað er á morgun, fimmtudag og á föstudag. Opið er á laugardag en lokað á páskadag og annan í páskum.

Að sögn Sigrúnar Óskar Sigurðardóttur aðstoðarforstjóra komu 37 þúsund manns í verslanir ÁTVR miðvikudaginn fyrir páska á síðasta ári.

Dagurinn er einn af stóru dögum ársins en laugardagur fyrir páskadag er aftur á móti líkur hefðbundnum laugardögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert