Rúta með átján manns um borð fór út af veginum austan við Heimaland undir Eyjafjöllum, skammt frá afleggjaranum að Þórsmörk í morgun. Þrír voru fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsl.
Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi fór rútan útaf vegna hálku.
Lögreglan er enn á vettvangi.