Samþykktu verkfallsboðun

Starfsmenn undirverktaka á athafnasvæði ALCOA Fjarðaáls samþykktu í dag boðun …
Starfsmenn undirverktaka á athafnasvæði ALCOA Fjarðaáls samþykktu í dag boðun um vinnustöðvun. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Starfsmenn undirverktaka á athafnasvæði ALCOA Fjarðaáls samþykktu í dag boðun um vinnustöðvun. Verkfallið verður tvískipt. Annars vegar frá hádegi 14. apríl og stendur það til 23.30 sama dag og hins vegar ótímabundið verkfall frá hádegi þann 21. apríl. 

Alls voru 375 félagsmenn á kjörskrá, 159 greiddu atkvæði eða 42%. Já sögðu 151 eða 95% greiddra atkvæða, nei sögðu 5 eða 3% og auðir seðlar voru 2 eða 2%

Í tilkynningu kemur fram að verkfallið taki til fjölda starfa, m.a. við framleiðslu, viðhald, ræstingu, mötuneyti, hafnarvinnu, meðferð spilliefna og aðra þjónustu á og við verksmiðjuna svo og störf í vöruskemmu og við birgðahald og skrifstofustörf. Starfsmenn sem fara í verkfall vinna hjá átta undirverktökum ALCOA Fjarðaáls.

„Kröfur AFLs Starfsgreinafélags eru að greidd séu sambærileg laun fyrir sambærilega vinnu.  Félagið hefur gert kröfu um „lóðarsamning“ síðan 2006 en beindi kröfum að Samtökum Atvinnulífsins fyrst 2011 og síðan við gerð kjarasamninga 2013. Alls hafa í þessari lotu verið haldnir fimm sáttafundir en án árangurs.

Félagið harmar að þurfa að grípa til svo umfangsmikilla aðgerða sem verkfallsboðun er - en þetta er nauðvörn launafólks sem vill fá kjarasamning og réttlátt hlutskipti. Samtök Atvinnulífsins hafa mætt kröfum okkar með fullkomnu tómlæti. Þá er rétt að benda á að félagið og starfsmenn undirverktaka hafa sýnt ótrúlegt langlundargeð og eru nú fyrst að grípa til aðgerða eftir að hafa haft kröfurnar uppi í  fimm ár,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert