Vegna vinnu við vegrið á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í dag verður þrenging úr tveimur akreinum í eina á um 200 metra kafla í akstursstefnu til norðurs frá klukkan 9 og fram eftir degi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Vegna vinnu við brúargólf á brúnni yfir Sogið við Þrastalund er önnur akreinin lokuð en umferð er stýrt með ljósum. Reiknað er með að vinnan standi yfir til 20. júní.
Samkvæmt tilkynningunni eru hálkublettir á Hellisheiði en annars er nokkur hálka eða hálkublettir á Suðurlandi, einkum útvegum.
Á Vesturlandi er víða hálka eða hálkublettir á vegum. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku.
Hálka er víða á Vestfjörðum. Ófært er um Steingrímsfjarðarheiði en mokstur stendur yfir, snjóþekja og skafrenningur er á Þröskuldum. Þæfingsfærð er á Klettshálsi.
Á Norðurlandi er hálka á Öxnadalsheiði en hálka og skafrenningur á Víkurskarði. Lokað er um Siglufjarðarveg, en snjóflóð féll úr Miðstrandargili. Búast má við að úr fleiri giljum komi snjóflóð. Hálka er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og snjóþekja á Vopnafjarðarheiði. Þæfingsfærð er á Jökuldal.
Á Austurlandi er hálka eða snjóþekja á vegum. Ófært og stórhríð er á Fjarðarheiði. Ófært um Vatnsskarð eystra en mokstur er hafinn þar. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Oddsskarði, eins er þæfingsfærð á Hróarstunguvegi og á Hlíðarvegi. Hálka eða hálkublettir með suðausturströndinni.