Tókst að bjarga húsinu

Talsvert tjón varð þegar eldur kom upp í sumarhúsi í Miðdal austan við Laugarvatn laust fyrir klukkan 18 í gær.

Í frétt Sunnlenska um málið segir að nágranni hafi tilkynnt Neyðarlínunni um reyk frá húsinu og voru slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu á Laugarvatni snöggir á vettvang. 

Snarræði slökkviliðsins bjargaði því að ekki fór verr því þegar þeir komu á staðinn var töluverður eldur í utanáliggjandi geymslu auk þess sem eldur var kominn í þak og inn í húsið.

Tjónið er talsvert en það náðist að bjarga húsinu,“ sagði Þórir Tryggvason, varðstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu, í samtali við sunnlenska.is.

Sjá frétt Sunnlenska.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert