Sveppurinn hindrar ekki Tékkaleikinn

Sveppasýking hrjáir Laugardalsvöll sem stendur.
Sveppasýking hrjáir Laugardalsvöll sem stendur. mbl.is/Golli

Laugardalsvöllur verður tilbúinn fyrir heimsókn Tékka í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu karla í júní þrátt fyrir að svæsin sveppasýking hrjái völlinn nú.

Að sögn Kristins V. Jóhannssonar vallarstjóra eru um 30% af vellinum ónýt en eins og sakir standa er ekki ástæða til að hafa áhyggjur af því að völlurinn verði ekki kominn í lag þann 12. júní.

„Völlurinn er mun betri en í fyrra en engu að síður náðum við að spila á vellinum 4. júní þegar við áttum landsleik þá,“ segir Kristinn. Hann segir að þegar tækifæri gefist til muni verða farið í framkvæmdir á vellinum auk þess sem sáð verður í þann hluta vallarins, sem er ónýtur, í apríl.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert