Nakinn karlmaður á Sæbraut

Maðurinn var nakinn og ráfaði fyrir bíla sem óku eftir …
Maðurinn var nakinn og ráfaði fyrir bíla sem óku eftir götunni. Ómar Óskarsson

Tilkynnt var um nakinn mann á Sæbrautinni í Reykjavík um klukkan hálf tólf morgun.

Maðurinn ráfaði fyrir bifreiðar sem óku eftir götunni en þegar lögregla hafði afskipti af honum kom í ljós að hann var verulega vímaður og ekki í neinu standi til útiveru. Gistir hann fangageymslu lögreglu.

Þá var tilkynnt um þjófnað á vínflöskum á hóteli í Reykjavík rétt fyrir klukkan þrjú. Í tilkynningu frá lögreglu segir að kona ein, sem þekkt er hjá lögreglu, hafi þarna gerst fingralöng.

Tilkynnt var um þrjú innbrot í bifreiðar eftir hádegi í dag og einnig um eignaspjöll á bifreið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert