Loftrýmisgæsla NATO við Ísland að hefjast

Bandarísk F-15 orrustuþota.
Bandarísk F-15 orrustuþota. Wikipedia

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju mánudaginn næsta, 13. apríl, með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Alls munu um 200 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). 

Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-15 orrustuþotur og eina KC-135 eldsneytisbirgðaflugvél, að því er segir á vef Landhelgisgæslunnar.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 15. til 17. apríl.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki um miðjan maí. Verkefnið er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert