Sigmundur Davíð endurkjörinn formaður

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. mbl.is/Ómar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var endurkjörinn sem formaður Framsóknarflokksins á flokksþingi í dag. Hann fékk 98,2 prósent gildra atkvæða og er þar með réttkjörinn formaður flokksins til næstu tveggja ára.

Óskar Guðmundsson úr Framsóknarfélaginu í Mosfellsbæ gaf einnig formlega kost á sér, en að öðru leyti voru allir þingfundarfulltrúar í kjöri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert