Svaf í strætó og endaði í fangaklefa

Strætó á Skothúsvegi
Strætó á Skothúsvegi mbl.is/Árni Sæberg

Skömmu fyrir miðnætti var óskað eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna manns í strætó sem erfiðlega gekk að vekja. Þegar lögreglumenn vöktu manninn brást hann illa við og veittist að lögreglu.

Beita þurfti varnarúða til að yfirbuga manninn. Hann var fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem hann er vistaður í fangageymslu. Hann verður yfirheyrður síðar í dag. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert