„Desert“ til stjórnarmanna HB Granda

Framsýn, stéttarfélag fagnar því svigrúmi til launahækkana sem er til staðar í sjávarútvegi og endurspeglast í arðgreiðslum HB-Granda til eigenda fyrirtækisins upp á 2,7 milljarða.  Svo ekki sé talað um „desertinn til stjórnarmanna HB-Granda sem fellst í 33% hækkun stjórnarlauna,“ segir í ályktun félagsins.

„Staða atvinnulífsins sem endurspeglast í afkomu HB-Granda gerir kröfu Starfsgreinasambands Íslands um 300.000 króna lágmarkslaun, innan þriggja ára, léttvæga.“ 

Í ályktuninni kemur fram að aðildarfélög Starfsgreinasambandsins hljóti að velta því fyrir sér hvort ekki sé rétt að endurskoða kröfugerðina til hækkunar í ljósi þessara tíðinda. „Hagnaður fyrirtækja á ekki einungis að flæða til eigenda í formi arðgreiðslna og ofurlauna.“

Framsýn, stéttarfélag skorar á félagsmenn að greiða atkvæði með boðun verkfalls en atkvæðagreiðslu lýkur næsta mánudag. „Sýnum samstöðu og upprætum spillinguna sem viðgengst meðal stjórnenda fyrirtækja og fjármálafyrirtækja í landinu sem skammta sér laun eftir þörfum á kostnað lágtekjufólks.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert