Drengurinn vaknaður og á batavegi

Frá vettvangi slyssins.
Frá vettvangi slyssins. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Drengurinn sem lenti í alvarlegu slysi við Reykdalsstíflu í Hafnarfirði ásamt bróður sínum er vaknaður og kominn úr öndunarvél samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum.

Drengurinn er á hægum batavegi og verður áfram á gjörgæsludeild spítalans við Hringbraut þar sem hann fær viðeigandi stuðning og meðferð. Fjölskylda hansdvelur þar hjá honum.

Bróðir hans var útskrifaður af sjúkrahúsinu fyrr í vikunni en hann var endurlífgaður á slysstað.

Dv.is greindi fyrst frá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert