Ekkert nýtt tilboð frá SA

Samningaráð SGS fyrir utan húsnæði ríkissáttasemjara nú um hádegið. F.v.: …
Samningaráð SGS fyrir utan húsnæði ríkissáttasemjara nú um hádegið. F.v.: Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Finnbogi Sveinbjörnsson, Drífa Snædal, Björn Snæbjörnsson. Ljósmynd/SGS

Samningafundi Starfsgreinasambandsins (SGS) með Samtökum atvinnulífsins (SA) lauk í dag í húsnæði sáttasemjara án árangurs. Fundurinn hófst 10 í morgun en stóð í skamman tíma og samninganefnd SGS yfirgaf húsið án þess að vera með nýtt tilboð frá atvinnurekendum í farteskinu. Atkvæðagreiðslu um verkfall lýkur á mánudag en náist ekki að semja hefst verkfall hjá þúsundum verkafólks þann 30. apríl. Meginkrafa SGS hefur verið að lágmarkslaun fyrir fulla vinnu fari upp í 300.000 kr. á næstu þremur árum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Starfsgreinasambandinu.

Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, segir að það verði að viðurkennast að það hafi komið á óvart þegar samninganefndin mætti til fundar með Samtökum atvinnulífsins að heyra að þeir hefðu engar tillögur eða tilboð fram að færa.

„Bæði í ljósi umræðunnar í þjóðfélaginu síðustu daga og ekki síður vegna þess hve skammt er í að afar umfangsmiklar verkfallsaðgerðir hefjist um land allt, sem viðbúið er að hleypa muni öllu í hnút,“ segir Björn. „Það hlýtur að vera hagur allra að nota þann tíma sem við höfum og reyna að nálgast hvort annað við samningaborðið. Fulltrúar atvinnurekenda skila hins vegar enn auðu. Um leið finnum við gríðarlegan meðbyr með okkar kröfum úti í samfélaginu og heyrum í sífellt fleiri atvinnurekendum og öðrum fulltrúum fyrirtækja sem telja að svigrúm sé til að ganga til samninga við okkur á þeim grunni sem við höfum kynnt. Annað hvort berast þær skoðanir ekki til eyrna æðstu manna í SA eða þá að þeir eru að spila einhvern leik sem snýst um að halda fast við þessar skammarlega lágu hækkanir sem þeir buðu okkur í upphafi; 3-3,5%.”

Vinnudeilur - skýringarmynd

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert