Lenda í holum en fá engar bætur

Holan sem Kári lenti í á Mýrargötu í Reykjavík.
Holan sem Kári lenti í á Mýrargötu í Reykjavík. ljósmynd/Kári Þór Rúnarsson

Fjölmargir ökumenn hafa lent í tjóni vegna lélegs ástands vega á höfuðborgarsvæðinu upp á síðkastið, en víða hafa myndast djúpar holur í vegum. Kári Þór Rúnarsson er einn þeirra sem orðið hef­ur fyr­ir barðinu á vega­kerf­inu, en fyr­ir skömmu lenti hann ofan í holu á Mýrargötu í Reykjavík og skemmdi tvö dekk auk þess sem sprunga kom í framrúðu bílsins við höggið. 

Lögregluskýrsla var gerð og málið tilkynnt til tryggingarfélags strax næsta dag. Að sögn Kára vísaði tryggingarfélagið kröfunni á bug þar sem Vegagerðin er ekki bótaskyld ef ekki hefur verið tilkynnt um sömu holu áður. Kári segist þó gefa lítið fyrir þær skýringar, enda eigi hann ljósmyndir sem sýni annað.

Kári stillti lyklakyppu upp við hlið holunnar til að sýna …
Kári stillti lyklakyppu upp við hlið holunnar til að sýna stærð hennar. ljósmynd/Kári Þór Rúnarsson

„Hreinleg lygi hjá Vegagerðinni“

„Ég tók myndir af ástandinu þetta kvöld sem sýnir þessa stærðarholu sem hefur tekið þó nokkurn tíma að myndast. Í fyrsta lagi finnst mér undarlegt að á þeim tíma sem þessi hola hefur verið að myndast, hafi enginn bíll á vegum borgarinnar keyrt meðfram Mýrargötu. Einnig er nokkuð öruggt að einhvern tímann á þeim tíma sem tók holuna að myndast hafi að minnsta kosti einn lögreglubíll keyrt framhjá og þá ekki tilkynnt um holuna. Maður spyr sig þá hvað það sé ekki vanræksla hjá lögreglu?“ segir hann.

Hann segir það þó sanna „hreinlega lygi hjá Vegagerðinni“ að mikil möl er meðfram kantinum þar sem holan er. Mölin sé uppfyllingarefni sem hefur verið notað til að fylla upp í holuna sem hefur svo spólast upp úr henni aftur, enda líklegast fyllt upp í meðan frost var og erfitt var að malbika. Hvergi annars staðar meðfram Mýrargötunni sé svona mikið af möl meðfram vegakantinum.

Þessa mynd tók Kári eftir að fyllt hafði verið upp …
Þessa mynd tók Kári eftir að fyllt hafði verið upp í holuna, en þar má sjá möl meðfram kantinum, sem hefur líklega spólast upp úr henni þegar fyllt var upp í hana til að byrja með. ljósmynd/Kári Þór Rúnarsson

Situr uppi með rúmlega 200 þúsund króna tjón

„Fyrstu skilaboð frá tryggingarfélaginu var að þeir hafni þessari kröfu minni um tjónabætur. Ég sagðist ekki una því og tryggingarfélagið sagðist myndi hafa samband við Vegagerðina til að skoða málið frekar. Það tók þá 3 vikur að skoða málið og svara mér svo að þeir stæðu við fyrri höfnun og nú sit ég uppi með rúmlega tvöhundruð þúsund króna tjón sem Vegagerðin lætur falla á mig,“ segir Kári.

Hann segist alls ekki sáttur við þessi málalok og vill því draga þetta mál og „yfirhylmingu Vegagerðarinnar“ upp á yfirborðið. „Mér finnst það líka undarlegt að ég sem tjónaþoli er undir ákvörðun tjónvaldsins kominn um hvort ég fái bætur.“

Á Vest­ur­lands­vegi hafa mynd­ast rák­ir í vegi líkt og á …
Á Vest­ur­lands­vegi hafa mynd­ast rák­ir í vegi líkt og á Sæ­braut, en þar sem um stoðbraut er að ræða skap­ast mik­il hætta út frá þessu. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Tvö af 200 tjónum fengist bætt

Um tvöhundruð til­kynn­ing­ar um tjón vegna holuakst­urs hafa borist Vega­gerðinni það sem af er ári. Eru tjón­in þegar orðin um tvö­falt fleiri en allt árið í fyrra, þegar 110 til­kynn­ing­ar bár­ust. Aukn­ing­in er því gríðarleg á milli ára og með því mesta sem sést hef­ur sam­kvæmt upp­lýs­ing­um mbl.is.

Eins og töl­urn­ar bera með sér get­ur verið erfitt að fá tjónið bætt því ein­ung­is tveimur tjónþolum hef­ur tek­ist það en sé fólk ósátt við niður­stöðu í máli sínu er hægt að skjóta mál­inu til úr­sk­urðar­nefnd­ar vátryggingamála. Í henni sitja þrír lög­fræðing­ar fyr­ir hönd trygg­inga­fé­lag­anna, rík­is­ins og Neyt­enda­sam­tak­anna en 6.000 kr. kost­ar að fara með málið í þann far­veg. Aðeins sex úrskurðir hafa fallið hjá nefndinni frá áramótum, þegar ástand fór að versna til muna, en fjórir þeirra voru ekki ökumönnum í vil.

Lenti í tjóni á nákvæmlega sama stað mánuði áður

Einn úrskurður nefndarinnar var gefinn út í febrúar, mánuði áður en Kári lenti í tjóni, en ökumaður hafði lent í tjóni á nákvæmlega sama stað. Samkvæmt ökumanni í því máli hafði hola myndast á sama stað mánuði áður og sú viðgerð sem hafi átt sér stað þá hafi greinilega ekki verið nægilega góð þar sem holan hafi myndast á sama stað aftur. Sagði ökumaður Vegagerðina hafa mátt vita af því að augljós hætta væri á holumyndun á umræddum stað þar sem holan hafði myndast stuttu áður og full ástæða hafi verið til að fylgjast sérstaklega með.

Nefndin úrskurðaði að ökumaður ætti ekki rétt á bótum í því máli, þar sem ekki lágu fyrir gögn sem sýndu fram á að tilkynnt hefði verið um umrædda holu áður en tjón varð, og ekki heldur að viðgerð á sama stað mánuði áður hafi verið ófullnægjandi. Þá kemur fram að ekki liggji fyrir nægileg gögn sem sýndu að starfsmenn Vegagerðarinnar hafi vanrækt eðlilega eftirlitsskyldu sína með umræddum vegi þannig að sýnt sé gáleysi þeirra við störf sín. 

Þessi hola er við hring­torg á Reykja­vegi, og get­ur skapað …
Þessi hola er við hring­torg á Reykja­vegi, og get­ur skapað hættu fyr­ir öku­menn. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Má rekja til sparnaðar á undanförnum árum

Fram hef­ur komið að ástandið sem nú er á göt­um höfuðborg­ar­svæðis­ins má að tölu­verðu leyti rekja til sparnaðar á und­an­förn­um árum. Bæði hafa verið notuð end­ing­arminni efni í mal­bikið en einnig hef­ur verið gripið til þess ráðs að fylla í hol­ur í stað þess að leggja nýtt slitlag. Mbl.is hef­ur borist fjöldi ábend­inga um hol­ur víða um borg­ina, meðal ann­ars í Skeif­unni, Sig­túni, á Lækj­ar­götu, Reykja­nes­vegi, Holta­vegi, Fram­nes­vegi, Suður­lands­braut, Eggerts­götu, Mela­torgi og víðar. Þá eru djúp­ar rák­ir á Vest­ur­lands­vegi og Sæ­braut sem geta skapað mikla hættu.

Sjóvá trygg­ir stærstu veg­hald­ara á höfuðborg­ar­svæðinu: Vega­gerðina, Hafn­ar­fjarðabæ og Reykj­vík­ur­borg. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Sjóvá hef­ur orðið al­gjör spreng­ing í mál­um af þessu tagi og þau marg­falt fleiri en síðustu ár.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Vega­gerðinni er unnið að því að fylla upp í hol­ur af fremsta megni, en veður síðustu vik­ur hef­ur gert það erfiðara. Eft­ir hrun hafa verið notaðar ódýr­ari lausn­ir til að viðhalda slit­lagi en einnig að setja bæt­ur og fylla í hjól­för í stað þess að leggja nýj­ar yf­ir­lagn­ir.

Starfsmenn borgarinnar fylla í holur.
Starfsmenn borgarinnar fylla í holur. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert