Ók á 123 km/klst á Reykjanesbraut

mbl.is/Sigurður Bogi

Nokkrir ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 123 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km/klst.  

Þá voru nokkur brögð að því að ökumenn legðu bifreiðum sínum ólöglega eða virtu ekki umferðarreglur að öðru leyti, svo sem stöðvunarskyldu. Loks voru voru skráningarnúmer fjarlægð af nokkrum bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert