Staðan er „grafalvarleg“

Sigurður Bessason, formaður Eflingar, átti í gærkvöldi fund með samninganefnd …
Sigurður Bessason, formaður Eflingar, átti í gærkvöldi fund með samninganefnd Flóabandalagsins en mikil samstaða var á fundinum. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Þetta var mjög fjölmennur fundur. Á honum var farið yfir þá grafalvarlegu stöðu sem nú er komin upp og það samþykkt að vísa málinu til ríkissáttasemjara,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar, og vísar í máli sínu til fundar samninganefndar Flóabandalagsins sem haldinn var í gærkvöldi. Alls eiga þar sæti 120 manns og mættu um 100 þeirra á fundinn sem var rúmlega klukkustundar langur.

Verður kjaraviðræðum Flóans og Samtaka atvinnulífsins vísað til sáttasemjara strax í dag og verður það því á borði hans að boða til næsta fundar. „Það er engin lausn í sjónmáli í þeim deilum sem nú eru uppi,“ segir Sigurður og bætir við að verði sáttaumleitanir í húsakynnum ríkissáttasemjara án árangurs séu „verulegar líkur“ á verkföllum.

Blaut tuska framan í launafólk

Í ályktun stjórnar Eflingar segir um ákvörðun stjórnar HB Granda, sem tekin var á síðasta aðalfundi, að hækka stjórnarlaun fyrirtækisins um 33% að hún komi sem „blaut tuska“ framan í starfsmenn fyrirtækisins og launafólk. „Að stjórnendur í fyrirtækjum skenki sér ótrúlegar launabreytingar á sama tíma og þeir gera kröfu á almenning um að semja á hógværum nótum fer ekki saman,“ segir Sigurður.

Í Flóanum eru Verkalýðsfélagið Hlíf, VSFK og Efling. Kolbeinn Gunnarsson, formaður Hlífar, segir hækkun áðurnefndra stjórnarlauna hafa hleypt illu blóði í hans fólk. „Maður heyrir það á félagsmönnum að þegar þeir horfa fram á misskiptinguna sem er orðin í landinu þá sé ekkert annað í boði [en verkföll],“ segir hann. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir merki um aukna stéttaskiptingu á Íslandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert