Veiðidagar hvorki fleiri né færri

Sjávaúrútvegsráðuneytið hefur á undanförnum dögum fylgst náið með grásleppuveiðum í því skyni að geta áætlað veiði á yfirstandandi vertíð að því er segir í fréttatilkynningu. Samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar sé miðað við að heildarveiði á grásleppu á vertíðinni verði ekki yfir 6.200 tonnum. Búið sé að veiða rúman þriðjung af því heildarmagni. 

„Veiði á hvern dag er nokkru meiri en á vertíðinni 2014 og þá hefur veiðileyfum fjölgað um 30%. Ekkert bendir því nú til annars en áætluðu heildarmagni verði náð innan 32 daga markanna!
Í fréttatilkynningu ráðuneytisins 1. apríl sl. var þess getið að ákvörðun um fjölgun veiðidaga í 32 yrði endurskoðuð þegar ætla mætti að betri yfirsýn fengist yfir fjölda leyfa og aflabrögð. Í ljósi framangreindra upplýsinga um veiðarnar hefur ráðuneytið ákveðið að veiðidögum verði hvorki fjölgað né fækkað, þeir verðið 32 á yfirstandandi vertíð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert