Samtök atvinnulífsins hafa vísað kjaradeilum allra landssambanda innan Alþýðusambandsins, að frátöldu Sjómannasambandinu, til ríkissáttasemjara. Þetta fékkst staðfest hjá skrifstofu ríkissáttasemjara.
Um er að ræða VR, Rafiðnaðarsambandið, Samiðn, VM og MATVÍS. Þar að auki er Flóabandalagið með í för en það er hluti af Starfsgreinasambandinu, sem hefur þegar vísað deilunni til ríkissáttasemjara.