VR vísar deilu til sáttasemjara

Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR.
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR. Eggert Jóhannesson

Trúnaðarráð VR samþykkti einróma á fjölmennum fundi í gærkvöldi, 16. apríl, að vísa kjaraviðræðum félagsins við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. „Við höfum reynt síðustu vikur að koma hreyfingu á viðræður en þær tilraunir hafa skilað litlum árangri. Það er því okkar mat að skynsamlegast sé að vísa deilunni til sáttasemjara. Vonandi mun aðkoma hans leiða til þess að viðræður komist á meira skrið,“ segir í fréttatilkynningu frá Ólafíu B. Rafnsdóttur, formanni VR.

Kjarasamningar runnu út fyrir sjö vikum og nýr kjarasamningur virðist ekki vera í sjónmáli, að sögn Ólafíu. VR og Landssamband íslenskra verzlunarmanna lögðu fram kröfugerð sína í febrúar sl. og segir í tilkynningunni að viðræður hafi gengið mjög hægt. Eitthvað hafa aðilar nálgast hvað varðar grunnefnisþætti kjarasamningsins en ennþá er þó talsvert í land hvað það varðar. Þá segir að launaliður kjarasamningsins hafi lítið sem ekkert verið ræddur og þar skilji mikið á milli.

„Í lok árs 2013 vorum við tilbúin til að taka þátt í sameiginlegri vegferð með atvinnurekendum og stjórnvöldum, við skrifuðum undir kjarasamning sem hafði það að markmiði að auka kaupmátt. Sá trúnaðarbrestur sem varð milli verkalýðshreyfingarinnar og stjórnvalda skömmu eftir undirritun þess samnings er alvarlegri en stjórnvöld virðast gera sér grein fyrir. Ég hef ítrekað talað fyrir mikilvægi þríhliða samstarfs á vinnumarkaði en þegar traustið er farið, reynist það þrautin þyngri. Stjórnvöld verða að ávinna sér traustið aftur, yfirlýsingar um góðan vilja duga ekki lengur,“ er haft eftir Ólafíu í tilkynningunni.

Allt í blóma?

Forystumenn stjórnvalda lýsa því nú yfir „að hér sé allt í blóma og að kaupmáttur hafi aldrei verið meiri,“ segir Ólafía. „Loksins er eitthvað til skiptanna, segir forsætisráðherra. Það sem stendur útaf í þessari umræðu er hins vegar sú einfalda staðreynd að lægstu launin eru skammarlega lág og duga ekki fyrir lífsviðurværi þeirra sem þau þéna. Dagvinna verður að duga fyrir framfærslu, það er okkar krafa. Hún er einföld en virðist samt ekki komast til skila til þeirra sem við erum að ræða við. Og þegar fyrirtæki hækka laun stjórnarmanna sinna um tífalt hærri prósentu en í boði er fyrir hinn almenna launamann gengur skiljanlega fram af okkur. Er við öðru að búast? 

VR mun að óbreyttu vísa kjaradeilu sinni til ríkissáttasemjara í dag. Á hinum almenna vinnumarkaði blasa verkfallsaðgerðir við. VR skipaði nýverið í verkfallsnefnd félagsins en sæti í henni eiga einnig fulltrúar LÍV. Verkefni nefndarinnar er að skipuleggja aðkomu VR og annarra aðildarfélaga LÍV að verkfallsaðgerðum á almennum vinnumarkaði, komi til þeirra. Þá er fyrirhugaður fundur stjórnar Vinnudeilusjóðs á næstunni um mögulegar aðgerðir en hlutverk sjóðsins er að veita félagsmönnum VR, sem missa tekjur vegna vinnustöðvunar eða verkbanna, fjárhagsaðstoð. Þannig er VR reiðbúið að taka, með stuttum fyrirvara, ákvarðanir um aðgerðir, ef þörf er á.“

Kröfugerð VR miðar að því að hækka lægstu launin myndarlega. „Þar liggur okkar áhersla. Á fundi trúnaðarráðs í gærkvöldi var hugur í fólki og mikil samstaða. Á þeim grunni höldum við áfram,“ segir Ólafía.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert