Flugvél flugfélagsins Emirates lenti á Keflavíkurflugvelli eftir hádegi í dag, en um borð var veikur farþegi. Sjúkrabíll var kallaður á staðinn ásamt lögreglunni. Ekki liggja frekari upplýsingar um málið fyrir að svo stöddu.
Flugvélin er af gerðinni Airbus A380, en það er stærsta farþegaflugvél í heimi. Geta á milli 525 og 850 farþegar verið í vélinni hverju sinni.