Aðalleiðir eru nú greiðfærar að heita má um allt land, þó eru hálkublettir á fjallvegum á sunnanverðum Vestfjörðum og á Vatnsskarði og Þverárfjalli. Vegir sem ekki eru í vetrarþjónustu eru sumir hverjir orðnir færir.
Búið er að opna veginn yfir Öxi en þar eru hálkublettir. Vegir sem enn eru lokaðir eða ófærir eru t.d. Nesjavallaleið og eins bæði Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði.