...og blanda blóðinu í páskabrauð“

Palestínumaður í Gazaborg heldur á mynd af Marwan Barghuti, eins …
Palestínumaður í Gazaborg heldur á mynd af Marwan Barghuti, eins af leiðtogum Fatah. AFP

Stríð Ísraela og Palestínumanna um lítið land í Miðausturlöndum blossar upp öðru hverju, eins og ávallt í stríði eru mörg fórnarlömbin óbreyttir borgarar. Og oft sannleikurinn. Í fyrra féllu um 2100 Palestínumenn í loftárásum Ísraelshers á Gaza og 66 Ísraelar í flugskeytaárásum vígamanna Hamas á Ísrael. Sjálfir segja Hamas-menn að þorri fallinna á Gaza hafi verið óbreyttir borgarar. Ísraelar segja að helmingurinn hafi verið vígamenn Hamas.

Í Evrópu vita margir að ef hægt er að finna rætur þessa harmleiks er hann í gyðingahatrinu sem nasistar, þar áður Rússakeisari og enn fyrr kirkjan, ýttu undir. Án þessa haturs og Helfararinnar hefði fáum gyðingum dottið í hug að krefjast sjálfstæðs ríkis gyðinga. Til eru evrópskar þjóðsögur um hroðalegt framferði gyðinga, sumar ganga nú aftur í heimi múslíma.

„Við munum öll hvernig gyðingar voru vanir að slátra kristnum og blanda blóðinu í páskabrauð,“ sagði Osama Hamdan, félagi í miðstjórn Hamas, í viðtali við sjónvarpsstöð í Líbanon í fyrra. Þegar fréttamaður CNN-stöðvarinnar ræddi við hann og birti viðtalið með enskri þýðingu (sem Hamdan setti ekkert út á) vildi Hamas-maðurinn ekki draga ummælin til baka þótt hann væri þráspurður hvort hann stæði við þau. Hann sagði að sagan um drápin og páskabrauðið væri eitthvað sem hann hefði heyrt hjá mörgu fólki.

Boðar Hamas gyðingahatur?

Stefnuskrá Hamas var samin 1988, í henni er gyðingum, ekki bara Ísraelum, kennt um öll stríð á jörðinni. Þar stendur m.a. í fyrstu grein: „Ísrael mun halda áfram að vera til þangað til íslam mun eyða því eins og íslam hefur áður eytt öðrum.“ Æðstu menn Hamas hafa að vísu sagt síðustu árin að stefnuskráin sé úrelt og hampa henni ekki. En af hverju ekki að nema hana þá úr gildi og reyna þannig að draga úr tortryggni hjá Ísraelum sem að sjálfsögðu sjá í stefnuskránni enduróm hins forna gyðingahaturs? Nei, það er ekki hægt „af innri orsökum“, segja ráðamenn Hamas. Sem stjórnmálaskýrendur segja að þýði að ekki sé meirihluti fyrir því í stjórn samtakanna.

Hamas hefur síðustu árin ráðið öllu á Gaza og gagnstætt Fatah, flokki Mahmouds Abbas Palestínuforseta, neita samtökin statt og stöðugt að viðurkenna lögmæti Ísraels. Harðlínumenn í Ísrael nota þessa staðreynd sem helstu rökin fyrir því að tilgangslaust sé að semja við Palestínumenn en bæði Fatah og Hamas, sem lengi hafa deilt hart, eiga ráðherra í stjórn Palestínu.

Amnesty og Hamas

Mannréttindasamtökin Amnesty International birtu í fyrra skýrslur þar sem Ísraelar voru sagðir hafa beitt óeðlilegri hörku til að stöðva flugskeytaárásir Hamas. Þeir hefðu drýgt stríðglæpi. En nýlega birti Amnesty skýrslu um framferði Hamas-liða í sama stríði og sakaði þá líka um stríðsglæpi. Hamas hefði m.a. kennt Ísraelum um manntjón sem varð í flóttamannabúðum þegar flugskeyti Hamas-manna lenti á þeim. 13 manns dóu. Einnig staðfesti Amnesty frásagnir Ísraela af því að palestínskir vígamenn hefðu geymt sprengjur og flugskeyti í híbýlum óbreyttra borgara á Gaza og skólum sem Sameinuðu þjóðirnar reka. Og þeir hefðu skotið flugskeytum frá stöðum örskammt frá húsum þar sem óbreyttir borgarar, sem misst hefðu heimili sín, leituðu skjóls.

Hverjir eru heimildarmenn vestrænna fjölmiðla? Þeir eru sumir hlutdrægir, svo að notað sé milt orð. Norski læknirinn Mads Gilbert er maóisti og ákafur talsmaður Palestínumanna. Hann sýndi mikið hugrekki með því að stunda læknisstörf á Shiva-sjúkrahúsinu í Gazaborg í miðjum átökunum og hlaut verðskuldað lof fyrir það. En er hann marktækur heimildarmaður? Margir efast um það og benda á að hann hafi aldrei gagnrýnt Hamas þótt samtökin séu orðlögð fyrir trúarofstæki og leyfi enga andstöðu. Gazabúi sem grunaður er um að aðstoða Ísrael er drepinn án réttarhalda, það mun meira að segja hafa gerst á Shiva-sjúkrahúsinu sem sumir heimildarmenn segja að sé aðalbækistöð Hamas.

Daginn eftir árásina á Tvíburaturnana í New York 2001 spurði Dagbladet í Noregi Gilbert álits. Hann svaraði að árásin hefði ekki komið á óvart, Bandaríkjamenn hefðu valdið svo miklum þjáningum í heiminum. Líta yrði á mannfallið í New York í því ljósi. „Ef Bandaríkjamenn hafa rétt til að sprengja og drepa óbreytta borgara í Írak hafa hinir undirokuðu líka rétt á að ráðast á Bandaríkin með þeim vopnum sem þeir geta búið til.“

– Styður þú hryðjuverkaárásina á Bandaríkin? spurði blaðamaðurinn.

„Hryðjuverk eru slæmt vopn en svarið er já með það samhengi í huga sem ég nefndi,“ svaraði læknirinn. Þess ber þó að geta að nokkrum árum seinna sagðist hann iðrast þess að hafa svarað með þessum hætti. Hann væri algerlega á móti hryðjuverkum.

Í stefnuskrá Hamas, gr. 7, er m.a. vitnað í svonefnd hadít, ýmis ummæli sem höfð eru eftir Múhameð en ekki eru í Kóraninum. „Dómsdagur mun ekki koma fyrr en múslímar berjast gegn gyðingum, þegar gyðingar fela sig bak við steina og tré. Steinarnir og trén munu segja: Ó múslímar, Ó Abdullah, það er gyðingur á bak við mig, komdu og dreptu hann.“

Umdeilt er meðal múslíma hve traustar heimildir hadít séu. En Hamas vitnar samt í þessi ummæli í stefnuskrá sinni og ýtir þannig undir gagnkvæmt hatur.

Liðsmenn vopnaðs arms Hamas-samtakanna.
Liðsmenn vopnaðs arms Hamas-samtakanna. AFP
Khaled Meshaal, leiðtogi Hamas-samtakanna.
Khaled Meshaal, leiðtogi Hamas-samtakanna. AFP
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert