Kviknaði í sængurfötum

Tilkynning barst slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um klukkan hálftvö í dag um eld í iðnaðarhúsnæði við Funahöfða í Reykjavík sem nýtt hefur verið sem íbúðir. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var allt tiltækt lið sent á staðinn.

Þegar á staðinn kom reyndist eldurinn minni en óttast var en kviknað hafði í sængurfötum. Var eldurinn slökktur og er nú unnið að því að reykræsta húsnæðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert