Víða hægt að skíða

mbl.is/Ómar

Skíðasvæðin á Siglufirði og í Hlíðarfjalli eru opin í dag frá klukkan 10 til 16. Nægur snjór er á báðum stöðum. Logn er og sól í Hlíðarfjalli og á Siglufirði er léttskýjað og sunnan gola. Einnig er opið skíðasvæðið í Stafdal á Seyðisfirði og í Oddsskarði á Austfjörðum.

Í Bláfjöllum er lokað í dag vegna veðurs því mikill vindur er á svæðinu í dag. Einnig er lokað í skíðasvæðinu í Tungudal á Ísafirði vegna veðurs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert