33% hafa kosið í rektorskjöri

Guðrún Nordal og Jón Atli Benediktsson.
Guðrún Nordal og Jón Atli Benediktsson. Árni Sæberg

Ríflega 33% atkvæðisbærra höfðu klukkan 13.00 tekið þátt í rektorskjöri við Háskóla Íslands. Á sama tíma fyrir viku höfðu aðeins 25% kosið. Þátttaka meðal starfsmanna með háskólapróf er áberandi hæst, um 70%, en um 59% annarra starfsmanna og ríflega 29% nemenda höfðu greitt atkvæði klukkan 13.00.

Seinni umferð kjörs rektors Háskóla Íslands hófst klukkan 09.00 og stendur til klukkan 18.00. Í dag er kosið í annað sinn, þar sem en enginn frambjóðenda fékk helming greiddra atkvæða eins og reglur háskólans gera ráð fyrir.

Nú stendur valið milli Guðrúnar Nordal og Jóns Atla Benediktssonar, en atkvæðagreiðslan fer fram gegnum Ugluna, þar sem nemendur og starfsmenn skólands geta greitt atkvæði.

Jón Atli Benediktsson hlaut 48,9% greiddra atkvæða í fyrri umferðinni, Guðrún Nordal 39,4% og Einar Steingrímsson 9,7%.

Nýr rektor verður kynntur í hátíðarsal Háskóla Íslands þegar talningu lýkur, en salurinn verður opnaður klukkan 19.00.

Seinni umferð rektorskjörs hafin

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert