Fyrsta líkamsræktarstöð Breiðholts

Það var glaður hópur sem stillti sér upp að undirskrift …
Það var glaður hópur sem stillti sér upp að undirskrift lokinni. Ljósmynd/Reykjavíkurborg-World Class

Líkamsræktarstöð verður byggð við Breiðholtslaug og er stefnt að opnun eftir rúma átta mánuði eða í janúar 2016. Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu Reykjavíkurborgar og World Class. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Björn Leifsson, fulltrúi Þreks ehf. sem rekur World Class, skrifuðu undir samning um byggingu og rekstur stöðvarinnar í dag. Engin líkamsræktarstöð er rekin í Breiðholti og verður stöðin sú fyrsta sinnar tegundar í hverfinu.

„Ég er mjög glaður fyrir hönd Reykjavíkur og Breiðhyltinga sérstaklega. Það verður gott fyrir hverfið að fá loksins líkamsræktarstöð en hún mun líka koma til með að styrkja Breiðholtslaug enn frekar,“ sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri við undirritunina í dag. 

Samnýta aðstöðu

Líkamsræktarstöðin verður byggð sunnan sundlaugarinnar og gerður tengigangur meðfram íþróttahúsi til að samnýta afgreiðslu, búningsklefa og sturtur með sundlauginni. Einnig fá gestir stöðvarinnar aðgang að laug og pottum.  Deiliskipulag hefur verið samþykkt og heimilar það aukinn byggingarrétt að 1.700 fermetrum. Líkamsræktaraðstaðan verður hönnuð af Úti og Inni arkitektum og Ara Má Lúðvíkssyni arkitekt.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist fljótlega og á líkamsræktaraðstaðan að verða tilbúin eins og áður segir í janúar 2016. 

„Við erum mjög stolt og spennt fyrir því að vinna að þessu verkefni með borginni. Stutt er í opnun þannig að það er eins gott að láta hendur standa fram úr ermum en við ætlum að sjálfsögðu að standa við stóru orðin,” segir Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við nýbyggingu verði boðnar út samhliða útboði á þeim breytingum sem gera þarf á þjónustubyggingu Breiðholtslaugar.

Þrek ehf. mun byggja og reka líkamsræktaraðstöðuna, en Reykjavíkurborg byggir glerganginn meðfram íþróttahúsinu.  Þrek ehf. greiðir 75 milljónir króna fyrir byggingarréttinn, gatnagerðargjöld og afnot af bílastæðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert