Harður árekstur á Suðurlandi

Alvarlegt bílslys varð á Biskupstungnabraut skammt austan við Borg í …
Alvarlegt bílslys varð á Biskupstungnabraut skammt austan við Borg í Grímsnesi um klukkan 14:00 í dag. mbl.is/Þórður

Alvarlegt um­ferðarslys varð í dag um kl. 14.00 á Biskupstungnabraut skammt austan við Borg í Grímsnesi. Þar lentu saman fólksbifreið sem ekið var til norðaustur og jepplingur sem var ekið til suðvesturs en þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Ökumaður fólksbifreiðarinnar, sem var einn í bifreiðinni, slasaðist alvarlega og var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Hjón í jepplingnum voru flutt með sjúkrabifreið á heilsugæslustöðina á Selfossi til skoðunar og þaðan voru þau flutt áfram á slysadeild Landspítala. Þau eru ekki talin alvarlega slösuð samkvæmt því sem fram kemur í Facebook-færslu lögreglunnar.

Mikill viðbúnaður var á vettvangi og að verkefninu kom lögregla, sjúkralið, klippulið frá Brunavörnum Árnessýslu, fulltrúi rannsóknarnefndar samgönguslysa og aðrir sérfræðingar sem lögregla kallaði til sér til aðstoðar við rannsókn bílslyssins. 

Ekki liggur fyrir hver aðdragandi slyssins var að svo stöddu. Biskupstungnabraut hefur verið lokað vegna slyssins en verður opnuð innan klukkustundar. Rannsóknardeild lögreglustjórans á Suðurlandi biður þá sem hugsanlega voru vitni að aðdraganda slyssins og/eða að slysinu sjálfu að hafa samband í síma 444 2010.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert