Kjörsókn stúdenta tvöfaldaðist

Jón Atli ásamt eiginkonu sinni, Stefaníu Óskarsdóttur.
Jón Atli ásamt eiginkonu sinni, Stefaníu Óskarsdóttur. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Stúdentaráð Háskóla Íslands óskar nýjum rektor, Jóni Atla Benediktssyni, innilega til hamingju með sigurinn í rektorskosningunum sem fóru fram í gær. Stúdentaráðsliða hlakkar til að starfa með honum í framtíðinni og vinna saman að bættum hag stúdenta. Þetta segir í tilkynningu frá Stúdentaráði.

Kjörsókn nemenda var 48,7%, en það er mun hærra en í kosningunum árið 2005. Þá var kosningaþátttaka aðeins 24% - bæði í fyrri og seinni umferð. Með þessu er augljóst að nemendur láta sig málið varða, enda er rektor málsvari háskólans í heild.

Rektor starfar ekki aðeins í þágu starfsfólks háskólans, heldur einnig í þágu nemenda. Jón Atli hefur lagt mikla áherslu á aukið samstarf við nemendur og skiptir rödd stúdenta hann miklu máli.

Stúdentaráð segir það sjást einna helst á stefnumálum hans, en hann mun koma til með að standa með stúdentum í hagsmunavörslu út á við og tryggja gæði náms við háskólann, ásamt nútímavæðingu kennsluhátta. Stúdentaráð telur að að víðtæk reynsla Jóns Atla, bæði innan háskólans og við nýsköpunarstörf, eigi eftir að nýtast háskólasamfélaginu vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert