Skoðanakúgun ekki lausnin

Helgi Hrafn Gunnarsson þingflokksformaður Pírata.
Helgi Hrafn Gunnarsson þingflokksformaður Pírata. mbl.is/Rósa Braga

„Kynfrelsi, hinseginfræðsla og umburðarlyndi eru sterkari málstaðir en svo að þeir krefjist skoðanakúgunar til að bera sigur af hólmi. Allra versti óvinur fordómanna er opin frjáls umræða,“ sagði Helgi Hrafn Gunnarsson, þingflokksformaður Pírata, á Alþingi í dag.

Helgi gerði þar að umfjöllunarefni sínu fyrirætlanir um hinseginfræðslu í skólum í Hafnarfirði og viðbrögð Gylfa Ægissonar tónlistarmanns sem stofnað hefur Facebook-síðu gegn þeim hugmyndum. Helgi sagði fyrirætlanir Hafnarfjarðarbæjar góðar en viðbrögðin við gagnrýni á þær væri ekki sú að koma í veg fyrir að slíkar skoðanir væru viðraðar heldur að svara þeim. Skoðun Gylfa á samkynhneigð væri orðin þjóðþekkt enda ein óvinsælasta skoðunin á landinu í dag.

„En þrátt fyrir fullkominn ósigur hans í umræðunni nú sem fyrr er strax komin fram sú krafa að tilkynna síðu hans sem hatursáróður og þar með fá henni lokað. Halda má því til haga að það er ákvörðun Facebook, ekki okkar. En það er þó fullt tilefni til að mótmæla slíkum kröfum. Menn hætta ekki að hafa skoðanir með því að þeim sé bannað að tjá þær. Þvert á móti sannfærir þöggun fólk um það eitt að samfélagið sé rökþrota. Að fólk sem berjist gegn fordómum þori ekki einu sinni að verja stuðning sinn við eitthvað jafnsjálfsagt og hinseginfræðslu og kynfrelsi og umburðarlyndi,“ sagði Helgi.

Vondar skoðanir yrðu að heyrast til að hægt væri að takast á við þær. „Með því að þagga niður í óvinsælum skoðunum lokum við augunum fyrir vandanum og skiljum hann eftir jafnóútkljáðan og áður. Börn fordómafulls fólks munu halda áfram að heyra slíkum skoðunum varpað fram á heimilinu jafnvel ef tekið er fyrir þær á svæðum eins og Facebook. Munurinn er sá að á heimilinu heyrast ekki einnig viðbrögð samfélagsins.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert