Bókaverðlaun barnanna afhent

Frá verðlaunaafhendingunni í dag.
Frá verðlaunaafhendingunni í dag. Mynd/Árni Sæberg

Í dag voru Bókaverðlaun barnanna veitt í Borgarbókasafninu Grófinni. Ár hvert verðlauna almennings- og skólabókasöfn landsins tvær nýjar bækur, eina íslenska og aðra þýdda. Börn og unglingar velja uppáhaldsbækurnar sínar og fer valið fram á heimasíðu Borgarbókasafns og í grunnskólum og bókasöfnum um allt land.

Ævar vísindamaður fékk verðlaun fyrir frumsamda bók, en einnig eru veitt verðlaun fyrir þýdda bók. Nokkur börn sem tóku þátt í kosningunni fengu líka viðurkenningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert