Millilenti vegna veiks farþega

Flugvél Wow air á leið frá Keflavík til Berlínar þurfti að millilenda í Bergen í dag vegna veiks farþega. Mun farþeganum hafa verið komið undir læknishendur og var þá för vélarinnar haldið áfram. Áætluð lending var um 12:55 á staðartíma en henni seinkaði um ræpa tvo tíma vegna millilendingarinnar.

Upplýsingafulltrúi Wow air hefur staðfest ástæður millilendingarinnar en hafði ekki frekari upplýsingar um líðan farþegans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert