Í dag var fyrsta skóflustungan að einu stærsta byggingarverkefni miðborgarinnar fram til þessa tekin.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, Helgi S. Gunnarsson forstjóri Reginn, Gísli Steinar Gíslason og Guðni Rafn Eiríksson fyrir hönd Landstólpa þróunarfélags, tóku fyrstu skóflustunguna vegna upphafs framkvæmda við reit eitt og tvö við Austurbakka í Reykjavík.
Á reitunum eiga að rísa íbúðir og fjölbreytt húsnæði fyrir ýmsa atvinnustarfsemi, s.s. verslanir, veitingahús, skrifstofur og þjónustu. Auk þess verður byggður bílakjallari á reitnum sem verður samtengdur öðrum bílakjöllurum á lóðinni, allt að Hörpu. Áætlað að sameiginlegur kjallari rúmi um 1.000 bíla.
Framkvæmdaraðili er Landstólpar þróunarfélag og er áætlað að framkvæmdum á reitnum ljúki haustið 2018.