Dreginn vélarvana til hafnar

Aðstoða þurfti um 100 tonna netabát í land sem varð vélarvana skammt fyrir utan höfnina í Njarðvík í nótt.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var það nærstaddur bátur sem aðstoðaði áhöfn netabátsins að koma bátnum í land um eitt leytið í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert