Styðja stjórnvöld til uppbyggingar

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Robert Douglas Nicholson, utanríkisráðherra Kanada, áttu í gær fund í Montreal í aðdraganda ráðherrafundar aðildarrikja Norðurskautsráðsins sem hefst í dag í Iqaluit í Kanada. Ráðherrarnir ræddu tvíhliða samskipti Íslands og Kanada, m.a. samstarf ríkjanna í öryggis- og varnarmálum, fríverslun og flugmálum, segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Af alþjóðamálum bar hæst ástand og horfur í Úkraínu og í Mið-Austurlöndum. Þeir voru sammála um mikilvægi þess að styðja úkraínsk stjórnvöld við uppbyggingu innviða landsins og að skilyrðislaust bæri að virða lögmæt landamæri og fullveldi Úkraínu. Þá bar þeim saman um nauðsyn þess að eiga náið samráð og samstarf í baráttunni gegn alþjóðlegri hryðjuverkaógn. Ráðherrarnir lýstu eindregnum vilja til að efla og víkka samskipti Íslands og Kanada enn frekar á komandi árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert